Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hér finnurðu svör um vegaaðstoð, bílaviðgerðir, dekk og bílaleigubíla.

Vandræði á ferðinni

Ég setti rangt eldsneyti á bílinn. Má ég keyra á verkstæðið?

Nei. Ekki ræsa vélina. Ef hún er þegar í gangi skaltu drepa á henni og ekki ræsa hana aftur.

Þegar vélin fer í gang berst ranga eldsneytið um eldsneytiskerfið. Þá getur þurft meira en að tæma og hreinsa tankinn, því eldsneytisdæla og spíssar geta skemmst.

Hringdu og segðu okkur hvaða eldsneyti fór á bílinn, um það bil hversu mikið og hvort vélin hafi verið ræst.

Það sprakk á bílnum. Má ég aka hægt í næsta bæ?

Nei. Akstur á loftlausu dekki getur eyðilagt dekkið og skemmt felguna.

Ef varadekkið er í lagi getum við sett það undir á staðnum. Annars getum við flutt bílinn og sett nýtt dekk undir hann.

Hversu langt má aka á litlu varadekki?

Skoðaðu merkingarnar á varadekkinu. Flest lítil varadekk eru aðeins ætluð til stutts aksturs og hámarkshraðinn er yfirleitt 80 km/klst.

Notaðu varadekkið til að komast á verkstæði, ekki til að halda ferðinni áfram. Lítil varadekk henta ekki til aksturs á malarvegum eða fjallvegum.

Bíllinn er fastur í snjó. Á ég að halda áfram að reyna að losa hann?

Hættu eftir aðra tilraun. Spól grefur bílinn dýpra og gerir ísinn undir dekkjunum sleipari. Það getur líka skemmt kúplinguna eða sjálfskiptinguna.

Ef það er óhætt skaltu moka snjó frá hjólunum, reyna einu sinni varlega og hringja síðan eftir aðstoð. Bíddu í bílnum.

Það drapst á bílnum þegar ég ók yfir á. Má ég ræsa hann aftur?

Nei. Ekki reyna að ræsa vélina. Ef vatn hefur komist inn í vélina getur hún skemmst alvarlega við það.

Komdu öllum í öruggt skjól og hringdu eftir aðstoð.

Bíllinn fer ekki í gang og það heyrist bara smellur. Hvað getur verið að?

Oft er rafgeymirinn orðinn tómur, sérstaklega á veturna. Við getum komið og gefið bílnum start.

Þótt bíllinn fari í gang eftir startaðstoð er ekki víst að rafgeymirinn haldi hleðslu. Ef vandamálið kemur upp aftur gæti þurft að skoða rafgeyminn eða rafalinn.

Get ég gefið bílnum start sjálfur?

Lestu fyrst handbók bílsins, jafnvel þótt þú hafir startkapla og annan bíl til að gefa start. Röng tenging getur skemmt búnað í bílum með sjálfvirkri stöðvun og ræsingu eða AGM-rafgeymi. Réttu tengipunktarnir eru ekki alltaf á rafgeyminum sjálfum.

Hringdu ef þú ert ekki viss.

Lyklarnir eru læstir inni í bílnum. Getið þið opnað hann?

Við getum opnað bílinn án þess að skemma hann. Segðu okkur tegund og gerð bílsins.

Ef eini lykillinn að bílaleigubíl er týndur skaltu hafa samband við bílaleiguna. Það þarf að kóða nýjan lykil fyrir bílinn. Hringdu í okkur ef líka þarf að flytja hann.

Framrúðan skemmdist í grjótkasti. Er hægt að gera við hana?

Oft er hægt að gera við litla skemmd utan sjónsviðs ökumanns. Ef sprunga er farin að lengjast er yfirleitt ekki hægt að gera við hana. Hitabreytingar á veturna geta stækkað sprunguna hratt.

Komdu með bílinn svo við getum metið skemmdina.

Samband og aðstoð

Hversu fljótt getið þið komið?

Það fer eftir því hvar þú ert, hvernig veðrið er og hvort við séum þegar í öðru útkalli. Við áætlum komutíma þegar þú hefur samband.

Við svörum símanum allan sólarhringinn.

Getið þið komið þangað sem ég er?

Hringdu og segðu okkur hvar þú ert. Við erum með verkstæði á Egilsstöðum, Höfn og Djúpavogi og sinnum vegaaðstoð víðar, meðal annars á Suðurlandi.

Ef við komumst ekki til þín innan hæfilegs tíma bendum við þér á aðra aðstoð.

Er hægt að fá aðstoð á nóttunni, um helgar og á hátíðisdögum?

Já. Þú getur hringt allan sólarhringinn, alla daga ársins, vegna vegaaðstoðar, viðgerða og dekkjaþjónustu. Hringdu áður en þú kemur svo við getum tekið á móti þér á réttum stað.

Á ég að hringja í Towing.is eða 112?

Hringdu fyrst í 112 ef einhver er slasaður, bíllinn er á hættulegum stað eða fólk er úti án skjóls.

Ef allir eru óhultir og bíllinn kemst ekki áfram skaltu hringja í Towing.is.

Má ég senda skilaboð í stað þess að hringja?

Já. Þú getur sent okkur skilaboð á WhatsApp, Messenger eða Instagram, eða sent tölvupóst. Ef aðstoðin má ekki bíða er yfirleitt fljótlegra að hringja.

Bílaleigubílar og greiðslur

Nær tryggingin á bílaleigubílnum yfir þetta?

Spurðu bílaleiguna. Leigusamningar og tryggingar eru mismunandi, svo við getum ekki sagt til um hvað er innifalið hjá þér.

Spurðu sérstaklega um dekk, skemmdir undir bílnum, vatnstjón eftir akstur yfir ár, vindskemmdir á hurðum og sand- eða öskutjón. Vélrænar bilanir falla ekki undir sama tjónaflokk.

Þarf ég að láta bílaleiguna vita áður en þið gerið við bílinn?

Já. Hafðu fyrst samband við bílaleiguna. Ef þú lætur gera við bílinn án þess að tilkynna tjónið getur það haft áhrif á bótarétt þinn. Tjónið gæti líka talist ótilkynnt þegar þú skilar bílnum.

Bílaleigan sagði mér að hringja í sitt vegaaðstoðarnúmer.

Veldu þá leið sem veitir þér aðstoð sem fyrst og láttu okkur vita. Við sinnum útköllum fyrir vegaaðstoðarþjónustur sem margar bílaleigur nota, svo útkallið gæti komið til okkar í gegnum þær.

Með því að hringja beint í okkur geturðu sparað þér milliskref.

Getið þið útvegað gögn fyrir tryggingafélagið?

Já. Láttu okkur vita strax ef bílaleiga eða tryggingafélag greiðir fyrir verkið, svo við getum skráð nauðsynlegar upplýsingar frá upphafi.

Verkstæðið

Þarf ég að panta tíma á verkstæðinu?

Hringdu áður en þú kemur. Þú getur haft samband allan sólarhringinn vegna viðgerða eða dekkjaþjónustu. Við ákveðum í síma hvenær þú kemur.

Hversu langan tíma tekur viðgerðin?

Oft er hægt að ljúka algengum viðgerðum samdægurs ef varahlutirnir eru til. Það tekur lengri tíma ef panta þarf þá frá Reykjavík. Við förum yfir það með þér áður en þú ákveður hvort þú lætur gera við bílinn.

Ég þarf að ná flugi. Getið þið haft bílinn tilbúinn í tæka tíð?

Segðu okkur strax hvenær bíllinn þarf að vera tilbúinn. Við segjum þér hvort við teljum okkur geta náð því, svo þú hafir svigrúm til að gera aðrar ráðstafanir ef þarf.

Hvað kostar viðgerðin?

Við gefum verðtilboð áður en við hefjum verkið.

Dekk

Er hægt að gera við dekkið eða þarf ég nýtt?

Yfirleitt er hægt að gera við gat á miðjum slitfleti dekksins. Ekki er öruggt að gera við skemmdir á hlið dekks því það getur gefið sig fyrirvaralaust á ferð.

Skurðir á hliðum dekkja eru algengir eftir akstur á íslenskum malarvegum.

Seljið þið líka dekk?

Já. Við seljum sumar-, vetrar- og nagladekk af lager á öllum þremur stöðunum. Við getum líka sett undir dekk sem þú kemur með.

Hvenær má nota nagladekk?

Nagladekk eru heimil frá 1. nóvember til 15. apríl. Lágmarksmynstursdýpt vetrardekkja á fólksbílum er 3 mm.

Sjá upplýsingar Reykjavíkurborgar um nagladekk.

Á ég að velja nagladekk eða ónegld vetrardekk?

Það fer eftir því hvar og hvenær þú ekur. Ónegld vetrardekk eru hljóðlátari og henta við flestar aðstæður á hringveginum. Nagladekk gefa betra grip á sléttum ís, sem er algengur á fjallvegum og vegum meðfram fjörðum um hávetur.

Heilsársdekk henta ekki íslenskum vetraraðstæðum.

Bílar utan vegar

Getið þið sótt bíl sem hefur farið út af?

Já. Segðu okkur hversu langt bíllinn er frá veginum og hvort hann standi á hjólunum, svo við getum valið réttan búnað.

Á meðan þú bíður

Hvað á ég að gera á meðan ég bíð?

1. Komdu öllum úr umferðinni ef það er óhætt.

2. Kveiktu á hættuljósunum og settu viðvörunarþríhyrninginn fyrir aftan bílinn.

3. Vertu hjá bílnum. Þar er skjól og auðveldara er að finna bíl en manneskju sem hefur farið fótgangandi eftir aðstoð.

4. Skoðaðu færð og umferð og veðurviðvaranir.

Ekki leggja af stað gangandi eftir hjálp. Veður getur breyst hratt.

Fannstu ekki svarið?

Hringdu í okkur.

Hringja +354 892 6044WhatsApp